Barcelona leikur til úrslita

Lamine Yamal hjá Barcelona í færi í kvöld.
Lamine Yamal hjá Barcelona í færi í kvöld. AFP/Fadel Senna

Barcelona tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum spænsku meistarakeppninnar í fótbolta með sigri á Athletic Bilbao en leikið er í Sádi-Arabíu.

Hinn tvítugi Gavi kom Barcelona yfir á 17. mínútu og hann lagði upp annað markið á sautján ára Lamine Yamal á 52. mínútu og þar við sat.

Barcelona mætir annaðhvort Real Madríd eða Mallorca í úrslitum en þau mætast í hinum undanúrslitaleiknum annað kvöld.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert