Byrjaður að æfa en má það ekki

Pawel Cibicki fagnar marki í leik með Elfsborg sumarið 2019.
Pawel Cibicki fagnar marki í leik með Elfsborg sumarið 2019. AFP

Sænski knattspyrnumaðurinn Pawel Cibicki hefur hafið æfingar með sænska úrvalsdeildarliðinu Värnamo. Það má Cibicki hins vegar ekki þar sem hann er enn í keppnisbanni eftir að hafa gerst sekur um veðmálasvindl.

Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, úrskurðaði Cibicki á sínum tíma í fjögurra ára keppnisbann eftir að sænska knattspyrnusambandið hafði gert slíkt hið sama nokkrum mánuðum fyrr.

Bannið rennur sitt skeið 1. febrúar næstkomandi en þrátt fyrir það er hann mættur til æfinga. Því hefur sænska sambandið komið á fót rannsókn.

„Í ljósi frétta gærdagsins um að Pawel Cibicki æfi með IFK Värnamo hefur sænska knattspyrnusambandið komið á fót rannsókn þennan miðvikudag þar sem gengið verður úr skugga um hvort brotið hafi verið gegn skilyrðum leikbanns sem kom til vegna brota á reglum sambandsins um veðmál,“ sagði í tilkynningu frá sænska knattspyrnusambandinu.

Fékk viljandi gult spjald

Málið laut að því að Cibicki fékk vilj­andi gult spjald í leik með Elfs­borg gegn Kalm­ar í sænsku úr­vals­deild­inni árið 2019 og fékk greitt fyr­ir. Þá lék hann sem lánsmaður frá enska fé­lag­inu Leeds United.

Upp­hæðin sem Cibicki fékk greidda, um 4,3 millj­ón­ir ís­lenskra króna, sagði hann sjálf­ur að hafi ein­fald­lega verið lán.

Skömmu áður en leik­ur Kalm­ars og Elfs­borg hófst voru 27 nýir veðmála­reikn­ing­ar stofnaðir og áttu þeir það all­ir sam­eig­in­legt að veðja á að Cibicki myndi fá gult spjald í leikn­um.

Auk leikbanns var hann dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir sinn hlut í málinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert