Hákon Arnar Haraldsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, skoraði fyrir Lille í kvöld þegar liðið vann afar mikilvægan sigur á Nice, 2:1, í toppbaráttunni í frönsku 1. deildinni.
Sigurinn fleytti Lille upp fyrir bæði Mónakó og Nice og upp í þriðja sætið með 32 stig. París SG er með 43 stig á toppnum og Marseille 36 stig í öðru sæti.
Hákon jafnaði metin í 1:1 í byrjun síðari hálfleiks eftir sendingu frá Jonathan David og Bafode Diakite skoraði sigurmark Lille á 63. mínútu. Skagamanninum var síðan skipt af velli í uppbótartíma leiksins.
Hákon hefur þar með skorað í tveimur leikjum í röð og fjögur mörk í síðustu átta leikjum Lille. Tvö þeirra í frönsku 1. deildinni, eitt gegn Marseille í bikarkeppninni og eitt gegn Sturm Graz í Meistaradeildinni.
Hákon og samherjar í Lille heimsækja Liverpool á Anfield í Meistaradeildinni næsta þriðjudagskvöld.