Amorim: United betra með Rashford

Rúben Amorim og Marcus Rashford.
Rúben Amorim og Marcus Rashford. AFP/Samsett mynd

Rúben Amorim, knattspyrnustjóri Manchester United, telur að Marcus Rashford myndi bæta lið sitt en til þess að eiga kost á því þurfi hann að leggja jafn mikla vinnu á sig og aðrir leikmenn.

„Ímyndið ykkur hæfileikaríkan leikmann eins og Rashford, liðið okkar væri svo miklu betra með hann innanborðs. En hann verður að breytast.

Ef hann breytist tökum við honum fagnandi og við þurfum á því að halda. En á þessu augnabliki þurfum við að setja ákveðinn standard. Við bíðum eftir Rashford ef hann sýnir að hann vilji þetta,“ sagði Amorim á fréttamannafundi í dag.

Hef ekkert á móti Marcus

Athygli vakti þegar portúgalski stjórinn sagðist frekar setja 63 ára markmannsþjálfara sinn á varamannabekkinn en Rashford á fréttamannafundi á dögunum en Amorim beindi þá spjótum sínum að fjölmiðlum.

„Þið viljið gera þetta persónulegt. Ég hef ekkert á móti Marcus en ég verð að vera með sömu reglur fyrir alla. Við þurfum mörk, við þurfum leikmenn sem geta tekið á, við þurfum ógn á síðasta þriðjungi vallarins.

Staðan er sú sama hjá öllum leikmönnum. Ég mun ekki nota leikmann sem leggur sig ekki allan fram. Þegar mér finnst rétta augnablikið koma nota ég hvaða leikmann sem er.

Við erum betra lið með Rashford, það er alveg ljóst, en þar til rétta augnablikið rennur upp mun ég ekki skipta um skoðun,“ sagði hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert