Eldur fyrir utan Etihad

Slökkvilið náði að ráða niðurlögum eldsins.
Slökkvilið náði að ráða niðurlögum eldsins. AFP/Paul Ellis

Eldur kviknaði í varningsbás fyrir utan Etihad-leikvang enska knattspyrnufélagsins Manchester City fyrir leik karlaliðsins gegn Club Brugge í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Eldurinn kviknaði í bás sem er staðsettur nærri aðalinngangi leikvangins rétt fyrir klukkan 18 þegar stuðningsmenn City voru mættir til þess að berja þrjá nýja leikmenn liðsins, sem keyptir voru í janúar, augum.

Gera þurfti hlé á leikmannakynningunni vegna eldsins og fylgdu öryggisverðir og gæslumenn viðstöddum í öruggt skjól áður en slökkvilið kom á vettvang og slökkti fljótt í eldinum.

Í tilkynningu frá Man. City segir að atvikið hafi ekki áhrif á leiktíma leiksins gegn Club Brugge. Hann hefjist klukkan 20 eins og áætlað var.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert