Knattspyrnumaðurinn Hákon Arnar Haraldsson hefur spilað frábærlega með Lille í Frakklandi að undanförnu en hann hefur skorað fjögur mörk og lagt upp önnur tvö til viðbótar í 20 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu.
Hákon, sem er 21 árs gamall, braut bein í fæti á æfingu íslenska landsliðsins í september á síðasta ári og var frá keppni í rúmlega tvo og hálfan mánuð en hann missti af öllum leikjum Íslands í Þjóðadeildinni síðasta haust, ásamt því missa af tólf leikjum með Lille í öllum keppnum.
„Ég las það einhvers staðar að leikmenn sem koma úr frönsku deildinni í þá ensku séu fljótastir að venjast hraðanum á Englandi því hraðinn er mjög mikill hérna í Frakklandi,“ sagði Hákon.
Cristiano Ronaldo fór mikinn á dögunum þegar hann hrósaði efstu deild Sádi-Arabíu í hástert og talaði meðal annars um hana sem sterkari deild en þá frönsku.
„Ég get ekki tekið undir það. Hann hefur reyndar ekki spilað í Frakklandi og ég hef ekki spilað í Sádi-Arabíu en ég held að franska deildin sé nú sterkari,“ bætti Hákon við í samtali við mbl.is.
Ítarlegt viðtal við Hákon Arnar má sjá á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.