Króatinn Niko Kovac verður næsti knattspyrnustjóri þýska stórliðsins Borussia Dortmund þar sem hann mun skrifa undir eins og hálfs árs samning.
Sky Sport í Þýskalandi greinir frá því að Kovac muni líklega skrifa undir samninginn fyrir helgi.
Hann tekur við starfinu af Nuri Sahin sem var rekinn í síðustu viku eftir dræmt gengi.
Dortmund ræddi einnig við Ralf Rangnick, landsliðsþjálfara karlaliðs Austurríkis, en Króatinn hefur orðið fyrir valinu.
Kovac var síðast stjóri Wolfsburg í þýsku 1. deildinni og hefur áður stýrt Bayern München, króatíska karlalandsliðinu, Eintracht Frankfurt og Mónakó.