Sá rautt í fyrsta leik fyrir Liverpool

Amara Nallo sparkar í klofið á Johan Bakayoko og fékk …
Amara Nallo sparkar í klofið á Johan Bakayoko og fékk rautt spjald skömmu síðar. AFP/Nicolas Tucat

Enski knattspyrnumaðurinn Amara Nallo lék í kvöld sinn fyrsta leik fyrir aðallið Liverpool þegar hann kom inn á sem varamaður í leik gegn PSV Eindhoven í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu. Skömmu síðar fékk hann hins vegar beint rautt spjald.

Nallo kom inn á sjö mínútum fyrir leikslok og aðeins fjórum mínútum síðar fékk hann beint rautt spjald fyrir brot sem aftasti maður.

Gamanið var því stutt fyrir varnarmanninn unga en hann er aðeins 18 ára gamall.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert