Neymar staðfestir endurkomuna

Neymar fagnar marki í leik með Santos árið 2011.
Neymar fagnar marki í leik með Santos árið 2011. AFP/Nélson Almeida

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar hefur staðfest á samfélagsmiðlum að hann sé á leið aftur til uppeldisfélags síns Santos eftir að hafa yfirgefið félagið fyrir tólf og hálfu ári.

Neymar og Al-Hilal í Sádi-Arabíu komust að samkomulagi um að rifta samningi hans við félagið eftir að hann spilaði einungis sjö leiki á því einu og hálfa ári sem Neymar var á mála hjá því.

Þá strax var hann orðaður við endurkomu til Santos og tilkynnti Neymar að það væri raunin með því að birta myndskeið á aðgöngum sínum á samfélagsmiðlum.

Ég gat ekki haldið í mér til morguns, ég er búinn að samþykkja samningstilboð Santos! Ég hef hugsað lengi um þessa stund.

Það eru meira en tólf ár síðan ég yfirgaf Santos en mér líður eins og það hafi gerst í gær, sagði hann meðal annars í myndskeiðinu, sem má sjá hér:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert