Verður lengi áfram hjá Barcelona

Pedri heldur kyrru fyrir hjá Barcelona.
Pedri heldur kyrru fyrir hjá Barcelona. AFP/Javier Soriano

Spænski knattspyrnumaðurinn Pedri hefur skrifað undir nýjan samning við Barcelona sem gildir til sumarsins 2030.

Pedri er 22 ára gamall miðjumaður sem hefur verið lykilmaður hjá Barcelona allt frá því að hann gekk til liðs við félagið frá Las Palmas aðeins 17 ára gamall.

Síðasta sumar varð hann Evrópumeistari með spænska landsliðinu og vorið 2023 fagnaði hann spænska meistaratitlinum með Börsungum.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Pedri spilað tæplega 250 leiki fyrir félags- og landslið á ferlinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert