Danski knattspyrnuþjálfarinn Bo Heriksen hefur framlengt samning sinn við þýska félagið Mainz og er nú samningsbundinn til ársins 2027.
Henriksen ræddi við forráðamenn KSÍ um landsliðsþjálfarastarf karla en Arnar Gunnlaugsson var að lokum ráðinn í starfið.
Sá danski tók við Mainz í febrúar á síðasta ári og gerði vel í að halda liðinu upp í deild þeirra bestu.
Gengið á yfirstandandi tímabili hefur síðan verið með besta móti því Mainz er í sjötta sæti eftir 19 umferðir og í baráttu um sæti í Evrópukeppni á næstu leiktíð.
Henriksen lék m.a. með Val, Fram, og ÍBV á leikmannaferlinum og stýrði Brönshöj, Horsens og Midtjylland í heimalandinu, áður en hann tók við Zürich í Sviss. Þaðan lá leiðin loks til Mainz.