Knattspyrnumaðurinn Logi Hrafn Róbertsson lék sinn fyrsta leik í byrjunarliði fyrir Istra þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Gorica í efstu deild Króatíu í dag.
Hafnfirðingurinn gekk til liðs við Istra fyrr í mánuðinum en hann kom til félagsins á frjálsri sölu frá uppeldisfélagi sínu FH.
Hinn tvítugi Logi Hrafn lék fyrstu 87 mínúturnar fyrir Istra í stöðu varnartengiliðs en fyrsti leikurinn kom um síðustu helgi gegn stórliði Dinamo Zagreb í 3:1-tapi. Þá kom hann inn á sem varamaður.
Istra er í sjöunda sæti af tíu liðum í króatísku deildinni með 20 stig eftir 20 leiki, þremur stigum fyrir ofan fallsæti.