Karólína skoraði í toppslag

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir í leik með íslenska landsliðinu.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var á skotskónum hjá Bayer Leverkusen þegar liðið mátti sætta sig við 3:2-tap fyrir Eintracht Frankfurt í toppslag í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Frankfurt er eftir sigurinn eitt á toppi deildarinnar með 32 stig en Leverkusen er áfram í þriðja sæti með 29 stig, jafnmörg og Þýskalandsmeistarar Bayern München, þaðan sem Karólína Lea er að láni.

Hún var í byrjunarliði Leverkusen og jafnaði metin í 1:1. Karólina Lea var svo tekin af velli á 60. mínútu þegar staðan var orðin 3:2.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert