Útskýrir söluna á Hlín

Hlín Eiríksdóttir er orðin leikmaður Leicester.
Hlín Eiríksdóttir er orðin leikmaður Leicester. Ljósmynd/Leicester City

Landsliðskonan Hlín Eiríksdóttir samdi við enska knattspyrnufélagið Leicester City í gær en Leicester keypti hana af Kristianstad í Svíþjóð.

Hlín lék afar vel með Kristianstad og skoraði 11 mörk í 26 leikjum á sínu fyrra tímabili með liðið og 15 mörk í 25 leikjum á seinna tímabilinu.

Hún framlengdi í kjölfarið samning sinn við félagið en hefur nú verið keypt til Englands.

„Það var mjög ofarlega á óskalistanum að framlengja samninginn við Hlín og það tók sinn tíma að ganga frá því. Við gerðum okkur grein fyrir að það gætu komið tilboð og þá þyrftum við að meta stöðuna upp á nýtt.

Leicester kom með tilboð sem félagið og Hlín eru sátt við og því urðu þessi félagaskipti að veruleika. Þetta hefði ekki gerst fyrir nokkrum árum því þá voru kaup á leikmönnum ekki algeng á milli félaga í kvennafótbolta.

Við erum ofboðslega þakklát fyrir það sem Hlín gerði fyrir okkur og óskum henni alls hins besta,“ var haft eftir Lovisu Ström framkvæmdastjóra Kristianstad í færslu félagsins á Instagram. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert