Ísak skoraði með glæsilegu langskoti (myndskeið)

Ísak Bergmann í leiknum í dag.
Ísak Bergmann í leiknum í dag. Ljósmynd/Düsseldorf

Ísak Berg­mann Jó­hann­es­son skoraði fyrsta mark Düs­seldorf er liðið lagði Ulm, 3:2, á heima­velli í þýsku B-deild­inni í fót­bolta í dag.

Mark Ísaks var af dýr­ari gerðinni því miðjumaður­inn skoraði með glæsi­legu lang­skoti strax á ní­undu mín­útu. Þetta er hans sjö­unda mark í 20 leikj­um liðsins á tíma­bil­inu.

Düs­seldorf er í fjórða sæti deild­ar­inn­ar og í hörðum slag um að fara upp í efstu deild.

Markið má sjá hér fyr­ir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert