Stórleikur Hákons sem meiddist

Hákon Arnar Haraldsson lét vel að sér kveða en meiddist …
Hákon Arnar Haraldsson lét vel að sér kveða en meiddist síðan. AFP/Sameer Al-Doumy

Hákon Arnar Haraldsson átti afar góðan leik fyrir Lille er liðið sigraði Saint-Étienne í efstu deild Frakklands í fótbolta í kvöld, 4:1.

Í stöðunni 1:1 á 48. mínútu fékk Dylan Batubinsika beint rautt spjald fyrir að brjóta á Hákoni þegar Skagamaðurinn var að sleppa í gegn.

Skömmu síðar komst Lille í 2:1 og Hákon lagði svo upp mark á Gabriel Gudmundsson á 72. mínútu.

Því miður fyrir Hákon fór hann síðan meiddur af velli á 84. mínútu en ekki er vitað hve lengi íslenski landsliðsmaðurinn verður frá keppni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert