Engar framlengingar í Meistaradeildinni?

Frá leik Atalanta og Barcelona í Meistaradeildinni.
Frá leik Atalanta og Barcelona í Meistaradeildinni. AFP/Javier Soriano

Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, íhugar að hætta með framlengingu í útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu.

Enski miðillinn The Guardian greinir frá. Tilgangur reglubreytinganna er að minnka álag liða í keppninni.

Yrði þá farið beint í vítakeppni sé staðan eftir tvo leiki jöfn. Yrðu breytingarnar í fyrsta lagi árið 2027.

Bestu lið álfunnar spila fleiri leiki en nokkru sinni fyrr með fjölgun leikja í Meistaradeildinni og stækkun HM félagsliða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert