Sonia Bompastor, þjálfari kvennaliðs Chelsea í fótbolta, gaf nýverið út ævisögu sína þar sem hún opinberar ýmislegt um einkalíf sitt í fyrsta skipti.
Á meðal þess er langtímasamband hennar með Camille Abily og eiga þær fjögur börn saman. Voru þær liðsfélagar hjá Lyon og franska landsliðinu á sínum tíma.
Þær eru báðar á meðal tíu leikjahæstu leikmanna franska landsliðsins frá upphafi en þrátt fyrir að vera þekktar gátu þær haldið sambandi sínu leyndu í rúman áratug.
„Okkur líður ekkert sérstaklega vel með að opinbera þetta. Það er skrítið að segja frá þessu í fyrsta sinn. Þetta hafa verið 13 ár af lygum en við viljum aðeins fá að lifa fullkomlega eðlilegu lífi,“ sagði hún við RMC í Frakklandi.