Þorleifur Úlfarsson hefur yfirgefið ungverska knattspyrnufélagið Debrecen.
Þorleifur gekk í raðir félagsins frá Houston Dynamo í Bandaríkjunum í janúar í fyrra en lék aðeins þrjá leiki.
Hann hefur verið meiddur í meira en ár og gengist undir margar aðgerðir. Óvíst er hvað tekur við hjá Þorleifi en hann var valinn af Houston Dynamo í nýliðavali á sínum tíma og spilaði með liðinu í MLS-deildinni.