Gera stólpagrín að Klopp (mynd)

Jürgen Klopp.
Jürgen Klopp. AFP/Ben Stansall

Margir knattspyrnuunnendur í Þýskalandi urðu óhressir þegar Jürgen Klopp, fyrrverandi stjóri Liverpool, Dortmund og Mainz, samþykkti starfstilboð Red Bull-samsteypunnar.

Red Bull er ekki vinsælt í þýska boltanum eftir að félagið tók yfir Leipzig og hóf að dæla peningum í félagið. Gagnrýndi Klopp sjálfur fyrirtækið á sínum tíma og að mati margra seldi hann sál sína þegar hann tók tilboði orkudrykkjarisans.

Í árlegri skrúðgöngu í Mainz, þar sem Klopp var áður hetja, verður gert stólpagrín að stjóranum.

Er búið að hanna uppblásna útgáfu af honum, þar sem hann verður með Red Bull í annarri hendi og fótbolta í hinni á meðan hann flýgur á vængjum úr peningum. Þá er hann með derhúfu merkta evrunni.

Mynd af uppblásnum Klopp má sjá hér fyrir neðan.

Uppblásinn Jürgen Klopp.
Uppblásinn Jürgen Klopp. Ljósmynd/@ESPN
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert