Sænska knattspyrnufélagið Norrköping er í miklum fjárhagserfiðleikum eftir að félagið tapaði 43,8 milljónum sænskra króna á síðasta ári.
Var tapið mun meira en forráðamenn félagsins gerðu ráð fyrir en það skýrist aðallega á því að félaginu mistókst að selja leikmenn.
„Það er langt síðan við náðum að selja leikmann og það hefur mikil áhrif. Sala á leikmönnum er stór hluti af okkar rekstri. Við erum í vandræðum.
Nú verðum við að leyfa ungum leikmönnum að spila meira og gera hvað við getum til að laga stöðuna,“ sagði Michael Sturehed formaður félagsins við Norrköpings Tidningar.
Arnór Ingvi Traustason, Ísak Andri Sigurgeirsson og Jónatan Guðni Arnarsson leika allir með Norrköping.