Noregsmeistararnir vilja fá Loga

Logi Tómasson í leik Íslands og Tyrklands á síðasta ári.
Logi Tómasson í leik Íslands og Tyrklands á síðasta ári. mbl.is/Hákon

Noregsmeistarar Bodö/Glimt hafa mikinn áhuga á að fá landsliðsmanninn Loga Tómasson í sínar raðir frá Strömsgodset.

Nettavisen segir að samkvæmt sínum heimildum séu viðræður í gangi á milli félaganna en Logi hefur áður verið orðaður sterklega við Brann sem varð í öðru sæti í Noregi á síðasta tímabili.

Samkvæmt heimildum mbl.is ber þó talsvert á milli hjá félögunum því Strömsgodset vill fá háa upphæð fyrir Loga sem er samningsbundinn félaginu til loka tímabilsins 2026.

Logi var einn besti vinstri bakvörðurinn í norsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en Strömsgodset hafnaði þá í sjöunda sæti deildarinnar. Hann kom til félagsins frá Víkingi síðsumars árið 2023.

Bodö/Glimt er orðið sannkallað stórveldi í norska fótboltanum eftir sigurgöngu síðustu ára en í gær tryggði liðið sér sæti í  átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar með því að slá út Olympiacos frá Grikklandi, 4:2 samanlagt. Norsku meistararnir mæta Lazio frá Ítalíu í átta liða úrslitum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert