Ancelotti á leið í fangelsi?

Carlo Ancelotti er í klandri.
Carlo Ancelotti er í klandri. AFP/Thomas Coex

Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, fer fyrir dóm í Madrid í næstu viku vegna meintra skattsvika. Svikin eru sögð nema rétt rúmri einni milljón evra og fer ákæruvaldið fram á fjögurra ára og níu mánaða fangelsisvistar. Auk þess er krafist að Ancelotti greiði þrjár milljónir evra í sekt.

Ancelotti er sakaður um að hafa vísvitandi sleppt því að greiða hluta skatta sinna árin 2014 og 2015. Hann hefur þó endurgreitt það sem hann skuldaði með vöxtum og öðrum gjöldum. Í heildina hefur Ítalinn endurgreitt rúmlega 1,2 milljónir evra, þar af 200 þúsund evrur í vexti og önnur gjöld.

Málið snýst um greiðslur er varðar ímyndarrétt Ancelotti. Ákæruvaldið segist vera með sannanir fyrir því að hann hafi vísvitandi falið þessar greiðslur og þannig komist hjá því að borga skatt af þeim.

Hann er sakaður um að hafa falið þessar greiðslur í gegnum skúffufélög og sett þær á bankareikninga í skattaskjólum. Með þessum hætti birtust greiðslurnar ekki á skattskýrslum þjálfarans fyrir árin 2014 og 2015.

Réttarhöldin hefjast á miðvikudag og gæti niðurstaða dómsins orðið söguleg í baráttu spænskra yfirvalda gegn skattsvikum og undanskotum. Þá gæti þetta mál breytt því að stórum hluta hvernig fótboltamenn og þjálfarar haga fjárhagsmálum sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert