Spænska liðið Athletic Bilbao mætir vængbrotið til leiks í seinni leik liðsins gegn Manchester United í undanúrslitum Evrópudeildarinnar annað kvöld.
Oihan Sancet, markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu, verður ekki með vegna meiðsla og sömu sögu er að segja um bræðurna Inaki og Nico Williams.
Er um þrjá af bestu leikmönnum liðsins að ræða. Þá verður varnarmaðurinn Daniel Vivian ekki með vegna leikbanns en hann fékk rautt spjald í fyrri leiknum.
United er í afar góðum málum í einvíginu, eftir 3:0-útisigur í fyrri leiknum.