Sagt að ég mætti ekki setja mér takmark

Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði Bayern, lyftir þýska bikarnum eftir sigurinn …
Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði Bayern, lyftir þýska bikarnum eftir sigurinn á Werder Bremen í Köln á fimmtudaginn var. AFP/Ina Fassbender

„Þetta var mjög gam­an, bæði að vinna úr­slita­leik­inn og svo að geta fagnað um kvöldið bæði bik­ar­sigr­in­um og þýska meist­ara­titl­in­um,“ sagði Gló­dís Perla Viggós­dótt­ir, fyr­irliði Bayern München og ís­lenska landsliðsins í knatt­spyrnu og íþróttamaður árs­ins á Íslandi 2024, við Morg­un­blaðið.

Hún og sam­herj­ar henn­ar eru tvö­fald­ir meist­ar­ar í Þýskalandi í fyrsta skipti eft­ir að hafa sigrað Wer­der Bremen, 4:2, í bikar­úr­slita­leikn­um í Köln á fimmtu­dag­inn var. Bayern rauf með því tíu ára sam­fellda sig­ur­göngu Wolfs­burg í bik­ar­keppn­inni.

Þar á und­an höfðu Bayern-kon­ur tryggt sér þýska meist­ara­titil­inn þriðja árið í röð og Gló­dís hef­ur því orðið þris­var meist­ari á þeim fjór­um árum sem hún hef­ur leikið með þýska stór­veld­inu en er nú bikar­meist­ari líka í fyrsta skipti.

„Við vor­um bún­ar að bíða lengi eft­ir bik­arn­um, sér­stak­lega eft­ir tapið í fyrra, og auðvitað langaði okk­ur að vinna tvö­falt. Mér var reynd­ar sagt strax og bein­marið kom upp í mars að ég mætti ekki setja mér tak­mark um hvenær ég kæmi til baka, því þetta ætti bara að lag­ast, en ég var samt strax kom­in með í haus­inn að mig langaði til að spila þenn­an úr­slita­leik og ég er ótrú­lega ánægð með að það náðist,“ sagði Gló­dís, sem hef­ur misst af mörg­um leikj­um und­an­farna tvo mánuði vegna bein­mars í hné.

Viðtalið við Gló­dísi Perlu í heild sinni er í Morg­un­blaðinu í dag og er einnig aðgengi­legt í app­inu Mogg­inn.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert