Daníel Tristan Guðjohnsen og félagar í Malmö sigruðu Degerfors 4:1 á útivelli í efstu deild Svíþjóðar í knattspyrnu í dag.
Daníel var í fyrsta sinn í byrjunarliði Malmö síðan hann kom til félagsins árið 2023 og þakkaði traustið með því að leggja upp annað mark Malmö í leiknum. Hann fór svo af velli á 71. mínútu.
Malmö er í fimmta sæti deildarinnar þegar átta umferðir eru búnar með 14 stig.
Ari Sigurpálsson lék fyrstu 73 mínúturnar með Elfsborg sem vann Öster á útivelli, 1:0. Júlíus Magnússon hjá Elfsborg er frá keppni vegna meiðsla en liðið er komið í fjórða sæti með 16 stig.