Stuðningsmenn svekktir út í Albert

Albert Guðmundsson hefur misst af mörgum leikjum með Fiorentina.
Albert Guðmundsson hefur misst af mörgum leikjum með Fiorentina. Ljósmynd/Fiorentina

Landsliðsmaður­inn Al­bert Guðmunds­son var ekki í leik­manna­hópi Fior­ent­ina sem mætti Venezia í Íslend­inga­slag í ít­ölsku A-deild­inni í fót­bolta í Fen­eyj­um í dag. 

Al­bert hef­ur misst af 13 deild­ar­leikj­um hjá liðinu sem er í ní­unda sæti með 59 stig þegar tvær um­ferðir eru eft­ir. 

Al­bert er enn í eigu Genoa en Fior­ent­ina fékk hann á láni fyr­ir tíma­bilið og samdi um for­kaups­rétt á Al­berti en enn er óvíst hvort ít­alska fé­lagið hygg­ist nýta þann rétt.  

Fior­ent­ina greiddi Genoa um 5 millj­ón­ir punda fyr­ir láns­samn­ing­inn en for­kaups­rétt­ur­inn hljóðar upp á 14 millj­ón­ir punda auk 3 millj­óna punda í viðbót­ar­greiðslur.

Ekki til staðar þegar við þurf­um hann

Al­bert hef­ur verið í miklu hlut­verki hjá Fior­ent­ina þegar hann hef­ur verið heill og komið að 10 mörk­um í 32 leikj­um á tíma­bil­inu. Þó eru marg­ir stuðnings­menn liðsins svekkt­ir út í þessi meiðsli hans. Það voru mikl­ar vænt­ing­ar gerðar til hans fyr­ir leiktíðina eft­ir frá­bær tíma­bil hjá Genoa.

„Hann er alls ekki lé­leg­ur, ég hef enn mikla trúa á hon­um. 

En eins og staðan er núna þá skor­ar hann úr vít­um og stund­um öðrum skot­um en er alltaf meidd­ur og ekki til staðar þegar við þurf­um hann,“ skrifaði einn á X. 

„Við erum bún­ir að bíða eft­ir hon­um allt tíma­bilið og héld­um að hann myndi gera gæfumun­inn, en það hef­ur ekki gerst,“ skrifaði ann­ar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert