Brynjólfur Willumsson og samherjar hans í Groningen settu stórt strik í meistaravonir Ajax í hollensku knattspyrnunni í kvöld með því að jafna metin í 2:2 á níundu mínútu í uppbótartíma í leik liðanna.
Þar með náði PSV Eindhoven eins stigs forystu á Ajax fyrir lokaumferðina með því að vinna Heracles, 4:1. PSV er með 76 stig og á eftir útileik gegn Spörtu í Rotterdam en Ajax er með 75 stig og á eftir heimaleik gegn Twente.
Brynjólfur kom inn á sem varamaður hjá Groningen á 73. mínútu en liðið var manni færri þegar jöfnunarmarkið kom því Luciano Valente hjá Groningen fékk rauða spjaldið eftir að uppbótartíminn hófst.