Fór í hjartaaðgerð eftir yfirlið

Savy King hlýtur aðhlynningu í leiknum á föstudag.
Savy King hlýtur aðhlynningu í leiknum á föstudag. AFP/Harry How

Banda­ríska knatt­spyrnu­kon­an Savy King, varn­ar­maður Ang­el City í NWSL-deild Banda­ríkj­anna, gekkst á dög­un­um und­ir hjartaaðgerð eft­ir að það leið yfir hana í leik gegn Utah Royals í deild­inni.

Hin tví­tuga King féll við í leik liðanna á BMO-leik­vang­in­um í Los Ang­eles síðastliðinn föstu­dag.

Hún hlaut langvar­andi aðhlynn­ingu og var ástand King stöðugt þegar hún var flutt á sjúkra­hús í borg engl­anna.

Rann­sókn­ir lækna leiddu í ljós hjarta­galla og gekkst King af þeim sök­um und­ir skurðaðgerð í gær. Í til­kynn­ingu frá Ang­el City seg­ir að aðgerðin hafi gengið vel og að bata­horf­ur henn­ar séu frá­bær­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert