Hjörtur Hermannsson skoraði eitt marka Volos í kvöld þegar liðið vann Lamia, 3:0, í grísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Hjörtur kom liði sínu í 2:0 á 38. mínútu og þriðja markið kom tveimur mínútum síðar.
Með sigrinum gulltryggði Volos sér áframhaldandi sæti í deildinni en liðið er komið níu stigum frá fallsæti þegar tveimur umferðum er ólokið.
Hjörtur kom til Volos frá Carrarese á Ítalíu í janúar. Hann hefur leikið alla leiki liðsins, ávallt í hjarta varnarinnar, og þetta var hans annað mark fyrir félagið.