Fékk botnlangakast og missir af stórleiknum

Ferran Torres umkringdur þremur leikmönnum Real Madrid í stórleiknum á …
Ferran Torres umkringdur þremur leikmönnum Real Madrid í stórleiknum á sunnudaginn. AFP/Josep Lago

Spænski knatt­spyrnumaður­inn Ferr­an Tor­res get­ur ekki leikið með Barcelona í kvöld þegar liðið fær tæki­færi til að tryggja sér spænska meist­ara­titil­inn.

Tor­res var flutt­ur á sjúkra­hús og skor­inn upp vegna botn­langa­bólgu og miss­ir af þrem­ur síðustu leikj­um liðsins á tíma­bil­inu.

Hann átti stór­leik síðasta sunnu­dag þegar hann lagði upp þrjú marka Barcelona í sigr­in­um á Real Madrid, 4:3, þar sem Katalóníuliðið nán­ast tryggði sér meist­ara­titil­inn.

Í kvöld get­ur tit­ill­inn end­an­lega verið í höfn þegar Barcelona mæt­ir grönn­um sín­um í Esp­anyol í sann­kölluðum borg­arslag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert