Fimm dæmdir fyrir hatursglæpi

Vinícius Júnior kveinkar sér í leik með Real Madríd.
Vinícius Júnior kveinkar sér í leik með Real Madríd. AFP/Josep Lago

Fimm manns hafa verið dæmd­ir í eins árs skil­orðsbundið fang­elsi fyr­ir hat­urs­glæpi gegn Vinícius Júni­or, knatt­spyrnu­manni hjá Real Madríd.

Vinícius varð fyr­ir grófu kynþátt­aníði í leik Valla­dolid og Real Madríd á heima­velli Valla­dolid í sept­em­ber árið 2022 þegar hon­um var skipt af velli og gekk ná­lægt áhorf­end­um.

Menn­irn­ir fimm sem voru dæmd­ir mega ekki brjóta gegn skil­orði næstu þrjú ár, ann­ars þurfa þeir að sæta fang­elsis­vist.

Þá eru þeir bannaðir frá knatt­spyrnu­leikj­um á Spáni næstu þrjú ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert