Finnar skelltu Pólverjum - átta mörk Hollendinga

Finnar fagna sigrinum sæta gegn Pólverjum í kvöld.
Finnar fagna sigrinum sæta gegn Pólverjum í kvöld. AFP/Markku Ulander

Finn­ar unnu góðan heima­sig­ur á Pól­verj­um í kvöld, 2:1, í undan­keppni heims­meist­ara­móts karla í knatt­spyrnu.

Hol­lend­ing­ar burstuðu Möltu í Groningen í sama riðli, 8:0, og eru afar sig­ur­strang­leg­ir í riðlin­um en eitt lið kemst beint á HM. Finn­land er með 7 stig eft­ir fjóra leiki, Hol­land 6 stig eft­ir tvo leiki og Pól­land 6 stig eft­ir þrjá leiki.

Joel Pohjan­palo og Benjam­in Källm­an komu Finn­um í 2:0 áður en Jakub Kiwi­or, leikmaður Arsenal, minnkaði mun­inn fyr­ir Pól­verja.

Í Groningen var al­gjör ein­stefna hjá Hol­lend­ing­um sem voru komn­ir í 3:0 efti 20 mín­út­ur. Memp­his Depay skoraði tvö fyrstu mörk­in og fyr­irliðinn Virgil van Dijk það þriðja.

Í seinni hálfleik skoraði Donyell Malen tvö mörk, Xavi Simons, Noa Lang og Micky van de Ven sitt markið hver.

Virgil van Dijk fagnar marki sínu með samherjum sínum í …
Virgil van Dijk fagn­ar marki sínu með sam­herj­um sín­um í kvöld. AFP/​Koen Van Weel
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert