Áhorfandi á leik Finnlands og Póllands í undankeppni heimsmeistaramóts karla í knattspyrnu í Helsinki í gærkvöld lést eftir að hafa verið fluttur af Ólympíuleikvanginum á sjúkrahús í finnsku höfuðborginni.
Finnska knattspyrnusambandið staðfesti þetta núna undir kvöld en gert var 40 mínútna hlé á leiknum þegar flytja þurfti viðkomandi áhorfanda af vellinum. Samkvæmt fjölmiðlinum Iltalehti lést hann í nótt.
Leiknum var haldið áfram og lauk með finnskum sigri, 2:1.