Andri Lucas til sölu í Belgíu?

Andri Lucas í leik með Gent.
Andri Lucas í leik með Gent. AFP/Bruno Fahy

Íslenski landsliðsmaður­inn Andri Lucas Guðjohnsen er sagður vera til sölu eft­ir aðeins eitt tíma­bil í belg­ísku A-deild­inni.

Sam­kvæmt belg­ísk­um miðlum er Gent til­búið að selja Andra en hann hef­ur ekki náð sér á strik í Belg­íu. Í 46 leikj­um skoraði Andri fimm mörk.

Andri Lucas, sem er 23 ára, gekk til liðs við Gent á síðasta ári eft­ir frá­bært tíma­bil í dönsku úr­vals­deild­inni með Lyng­by. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert