Hnefaleikamaðurinn Kolbeinn Kristinsson heldur til Finnlands til að verja Baltic Union titil sinn. Mótherji Kolbeins er Finninn Mika Miolinen.
Kolbeinn sigraði Pavlo Krolenko í maí mánuði en bardaginn var stöðvaður eftir fimm lotur eftir mikla yfirburði Kolbeins. Krolenko hljóp í skarðið með skömmum fyrirvara eftir að Miolinen heltist úr lestinni en nú mætast þeir loksins.
Með sigri getur Kolbeinn komist í hóp 80 bestu þungavigtarboxara heims.