Luke Humphries og Michael Smith skipa landslið Englands í pílukasti og tryggðu í kvöld heimsmeistaratitilinn eftir 10:6-sigur í úrslitaleiknum gegn Austurríki.
Þetta var fimmti titill Englands sem er nú orðin sigursælasta þjóð í sögu mótsins en það eru átta ár síðan að liðið vann síðast.
Þetta var í fyrsta sinn sem Luke Humphries var í liðinu en hann er ríkjandi heimsmeistari. Liðsfélagi hans Michael Smith var að taka þátt í fimmta sinn.
ENGLAND CLINCH WORLD CUP GLORY! 🏴🏆
— PDC Darts (@OfficialPDC) June 30, 2024
Luke Humphries and Michael Smith have made history here in Frankfurt!
The top seeds produce an outstanding display to defeat a spirited Austria 10-6 at the Eissporthalle!
📺 https://t.co/nh8y246ePn#WorldCupofDarts | Final pic.twitter.com/HkbzY3Q8Dj
Mensur Suljovic og Rowby-John Rodriguez, skipuðu lið Austurríkis en þeir hafa verið liðsfélagar á mótinu frá 2020 og Mensur Suljovic hefur aldrei misst af heimsmeistaramóti frá því að það var haldið fyrst árið 2010.