Brasilíska hjólakonan Jaine Oliveira lést 34 ára að aldri er hún lenti í árekstri í hjólakeppni í Baianópolis í heimalandinu í gær.
Oliviera, sem var tveggja barna móðir, lést þegar hún hafnaði á vörubíl með þeim afleiðingum að stór hátalari rakst í höfuð hennar.
Þrátt fyrir skjót viðbrögð viðstaddra tókst ekki að bjarga lífi þeirrar brasilísku. Önnur hjólreiðakona lenti einnig í árekstrinum en slapp með minniháttar meiðsli.
Ökumaður vörubílsins flúði vettvang eftir slysið og er málið til rannsóknar hjá lögreglunni á svæðinu.