„Það vildi enginn þjálfa þessa menn,“ sagði Vésteinn Hafsteinsson, afreksstjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, í Dagmálum.
Vésteinn, sem er 63 ára gamall, var ráðinn afreksstjóri ÍSÍ í janúar á síðasta ári eftir afar farsælan feril í íþróttum, fyrst sem kringlukastari og síðar sem afreksþjálfari.
Vésteinn þjálfaði bæði Gerd Kanter og Daniel Ståhl sem urðu báðir Ólympíumeistarar í kringlukasti undir leiðsagnar Vésteins.
„Það var enginn sem hafði trú á Gerd Kanter í kringum árið 2000 þegar ég byrjaði að þjálfa hann,“ sagði Vésteinn.
„Daniel Ståhl var álitinn einhver vandamáladrengur þegar ég tek við honum. Það var galsi í honum og þetta er ósköp góður drengur en það hafði enginn trú á honum heldur.
Ég tek þarna tvo stráka og þeir verða báðir Ólympíumeistarar eftir tíu ár,“ sagði Vésteinn meðal annars.
Viðtalið við Véstein í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.