Af hverju er þetta fólk ekki að þjálfa á Íslandi?

„Ef við tökum þessi milljarðafyrirtæki hér á landi sem dæmi, eru þau ekki best í heimi í sínu fagi?“ sagði Vésteinn Hafsteinsson, afreksstjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, í Dagmálum.

Vésteinn, sem er 63 ára gamall, var ráðinn afreksstjóri ÍSÍ í janúar á síðasta ári eftir afar farsælan feril í íþróttum, fyrst sem kringlukastari og síðar sem afreksþjálfari.

Samfélagsleg skylda fyrirtækjanna

Vésteinn setur spurningamerki við það af hverju margir af færustu þjálfurum Íslands séu að þjálfa á erlendri grundu.

„Mikið af þessu fólki innan fyrirtækjana er íþróttafólk sem vill sjá íþróttir halda áfram að þróast í rétta átt,“ sagði Vésteinn.

„Það er líka samfélagsleg skylda fyrirtækjanna að gefa til baka og sjá til þess að íslenskt samfélag haldi áfram að þróast. Þess vegna er það þannig, í öllum löndunum í kringum okkur, að ríkið kemur með 70% af fjármagninu inn í íþróttahreyfinguna og fyrirtækin í landinu koma með 30% af fjármagninu.

Ég sé ekki að við þurfum að finna upp hjólið í þessu og þetta virkar erlendis. Af hverju ætti þetta ekki að virka á Íslandi? Ég var að þjálfa í svona kerfi og ég vann medalíur.

Alfreð Gíslason, Þórir Hergeirsson, Dagur Sigurðsson, Elísabet Gunnarsdóttir og Heimir Hallgrímsson eru öll að þjálfa erlendis og ná í medalíur. Af hverju er þetta fólk ekki að þjálfa á Íslandi. Eigum við ekki bara að gera þetta hérna heima og ná í medalíur hér?“ sagði Vésteinn meðal annars.

Viðtalið við Véstein í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Alfreð Gíslason, Þórir Hergeirsson, Elísabet Gunnarsdóttir, Dagur Sigurðsson og Heimir …
Alfreð Gíslason, Þórir Hergeirsson, Elísabet Gunnarsdóttir, Dagur Sigurðsson og Heimir Hallgrímsson starfa öll á erlendri grundu. Ljósmynd/Samsett
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert