SA er með tvo sigra eftir tvo leiki í úrvalsdeild kvenna í íshokkí en liðið vann heimasigur á SR í Skautahöll Akureyrar í kvöld, 4:1. SR er án stiga.
Aðalheiður Ragnarsdóttir skoraði eina mark fyrstu lotunnar og var ekkert skorað í annarri lotu.
Silvía Björgvinsdóttir gerði annað mark heimakvenna á 45. mínútu og Kolbrún Björnsdóttir það þriðja á 49. mínútu.
Friðrika Magnúsdóttir lagaði stöðuna fyrir SR þremur mínútum síðar, en Magdalena Sulova gulltryggði sigur SA með marki þremur mínútum fyrir leikslok.