Spenna fram í blálokin

SA er með tvo sigra í tveimur leikjum.
SA er með tvo sigra í tveimur leikjum. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

SA er með tvo sigra eftir tvo leiki á Íslandsmóti karla í íshokkí en Akureyrarliðið sigraði SR, 4:2, í spennandi leik í Skautahöll Akureyrar í kvöld. SR er með einn sigur og eitt tap.

Róbert Hafberg skoraði eina mark fyrstu lotunnar er hann kom SA yfir á 19. mínútu. Axel Snær Orongan jafnaði fyrir SR á 32. mínútu.

Aðeins tveimur mínútum síðar skoraði Róbert sitt annað mark en Gunnlaugur Þorsteinsson jafnaði fyrir SR augnabliki síðar og var staðan fyrir þriðju og síðustu lotuna 2:2.

Uni Blöndað kom SA í 3:2 á 44. mínútu og munaði einu marki á liðunum þangað til tæp mínúta var eftir, en þá skoraði Unnar Rúnarsson eftir að SR hafði lagt allt kapp á að jafna leikinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert