Sæmundur Guðmundsson og Elsa Pálsdóttir urðu um helgina heimsmeistarar öldunga í klassískum kraftlyftingum í Sun City í Suður-Afríku.
Sæmundur átti mjög góðan keppnisdag og varð heimsmeistari í -83 kg flokki öldunga 70-79 ára. Sæmundur lyfti mest 160 kg í hnébeygju, 97.5 kg í bekkpressu og 190 kg réttstöðulyftu og hlaut gullverðlaun í öllum greinunum. Samanlagt lyfti hann 447.5 kg og tryggði sér þar með titilinn.
Elsa Pálsdóttir landaði einnig heimsmeistaratitli en þetta er fjórða árið í röð sem hún tryggir sér titilinn í -76 kg flokki öldunga 60-69 ára. Elsa lyfti 135 kg í hnébeygju og vann þar til gullverðlauna. Hún reyndi að bæta sitt eigið heimsmet í hnébeygju í annarri og þriðju tilraun en það hafðist ekki. Í bekkpressu vann Elsa til silfurverðlauna með lyftu upp á 65 kg og í réttstöðulyftu náði hún að lyfta 162.5 kg sem gaf henni gullið í þeirri grein. Samanlagt lyfti hún 362.5 kg og tryggði sér þar með heimsmeistaratitilinn með miklum yfirburðum.
Flosi Jónsson vann til silfurverðlauna en hann keppti í -105 kg flokki öldunga 70-79 ára. Flosi lyfti 150 kg í hnébeygju, 120 kg í bekkpressu og 190 kg í réttstöðulyftu og fékk silfurverðlaun í öllum greinum. Samanlagt lyfti hann 460 kg og hlaut fyrir það silfurverðlaun í samanlögðum árangri.
Þá keppti Hörður Birkisson í -74 kg flokki öldunga 60-69 ára. Hörður lyfti mest 175 kg í hnébeygju, 95 kg í bekkpressu og 195 kg í réttstöðulyftu og var nálægt sínum besta árangri í öllum greinum. Samanlagður árangur hans var 465 kg sem gaf honum fjórða sætið í flokknum.
Í beinu framhaldi af heimsmeistaramóti öldunga í klassískum kraftlyftingum fer fram heimsmeistaramót öldunga í kraftlyftingum með búnaði og munu íslensku keppendurnir einnig taka þátt í því.