Kári hetjan í toppslagnum

Kári Arnarsson í leik með landsliðinu.
Kári Arnarsson í leik með landsliðinu. Ljósmynd/Hafsteinn Snær Þorsteinsson

Kári Arnarsson var hetja SR þegar liðið tók á móti SA í Toppdeild karla í íshokkí í Skautahöllinni í Laugardal í dag.

Leiknum lauk með naumum sigri SR, 4:3, en Kári skoraði sigurmarkið þegar tæp mínúta var til leiksloka.

Þá voru þeir Gunnlaugur Þorsteinsson, Alex Sveinsson og Hákon Magnússon einnig á skotskónum fyrir SR en Jóhann Leifsson, Ólafur Björgvinsson og Ormur Jónsson skoruðu mörk SA.

SR er með 9 stig í efsta sæti deildarinnar, þremur stigum meira en SA og Fjölnir, en SA á leik góða á SR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert