Úrslitin réðust í framlengingu

SR hafði betur í gær gegn Fjölni.
SR hafði betur í gær gegn Fjölni. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

SR vann sinn fyrsta sigur á Íslandsmóti kvenna í íshokkí í gær þegar liðið tók á móti Fjölni í Skautahöllinni í Laugardal.

Leiknum lauk með naumum sigri SR, 3:2, þar sem Sara Sigurðardóttir tryggði SR sigurinn með marki í framlengingu. 

Inga Aradóttir kom SR yfir og Saga tvöfaldaði forystu SR snemma í öðrum leikhluta. Hilma Bergsdóttir og Kolbrún Garðarsdóttir jöfnuðu hins vegar metin fyrir Fjölni og staðan var því 2:2 að venjulegum leiktíma loknum.

SR er með þrjú stig í þriðja og neðsta sæti deildarinnar en Fjölnir er á toppnum með 16 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka