Heilt landslið týnt

Viktoriia Olekh keppti m.a. á Vetrarólympíuleikunum í Peking árið 2022.
Viktoriia Olekh keppti m.a. á Vetrarólympíuleikunum í Peking árið 2022. Ljósmynd/Ólympíuleikarnir

Skíðagöngukeppnin Tour de Ski hélt áfram á Ítalíu í gær samkvæmt áætlun en í keppninni eru farnar langar leiðir daglega, líkt og í hjólakeppninni frægu Tour de France.

Expressen frá Svíþjóð greinir frá því að úkraínska landsliðið hafi ekki látið sjá sig í gær, þrátt fyrir að hafa tekið fullan þátt í mótinu fyrir áramót.

„Ég veit ekki hvar þau eru. Þau komu ekki,“ sagði Michal Lamplot, umsjónarmaður keppenda á mótinu, í samtali við Expressen.

„Ég veit ekki hvað gerðist. Ég hef enga hugmynd hvar þau eru,“ sagði Synne Dyrhaug fjölmiðlafulltrúi Alþjóðaskíðasambandsins við sama miðil.

Úkraínska liðið átti ekki góðu gengi að fagna á mótinu. Viktoriia Olekh, Anastasia Nikon og Sofiia Shkatula, sem keppa í kvennaflokki, voru allar meira en 17 mínútum frá efstu konum.

Andriy Dotsensko, eini karlkeppandi Úkraínu á mótinu, var í 90. sæti af 91 keppanda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert