Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir var fyrr í kvöld kjörin íþróttamaður ársins 2024 í Hörpu.
Meðlimir Samtaka íþróttafréttamanna stóðu fyrir kjörinu og er óhætt að segja að Glódís hafi verið með mikla yfirburði. Hún hlaut 480 stig, eða fullt hús stiga.
Kraftlyftingakonan Sóley Margrét Jónsdóttir varð önnur með 207 stig og lyftingakonan Eygló Fanndal Sturludóttir varð þriðja með 159 stig.
Eygló var rétt á undan fótboltamanninum Alberti Guðmundssyni, því hann varð fjórði með 156 stig. Sundmaðurinn Anton Sveinn McKee varð fimmti með 131 stig.
Lokaniðurstaða kjörsins:
- Glódís Perla Viggósdóttir, knattspyrna 480
- Sóley Margrét Jónsdóttir, kraftlyftingar 217
- Eygló Fanndal Sturludóttir, ólympískar lyftingar 159
- Albert Guðmundsson, knattspyrna 156
- Anton Sveinn McKee, sund 131
- Ómar Ingi Magnússon, handknattleikur 94
- Snæfríður Sól Jórunnardóttir, sund 69
- Orri Steinn Óskarsson, knattspyrna 67
- Sveindís Jane Jónsdóttir, knattspyrna 57
- Ásta Kristinsdóttir, fimleikar 53
- Thelma Aðalsteinsdóttir, fimleikar 48
- Gísli Þorgeir Kristjánsson, handknattleikur 42
- Elvar Már Friðriksson, körfuknattleikur 37
- Tryggvi Snær Hlinason, körfuknattleikur 36
- Erna Sóley Gunnarsdóttir, frjálsíþróttir 30
- Daníel Ingi Egilsson, frjálsíþróttir 29
- Benedikt Gunnar Óskarsson, handknattleikur 16
- Emilía Kiær Ásgeirsdóttir, knattspyrna 9
- Aron Pálmarsson, handknattleikur 7
- Elín Klara Þorkelsdóttir, handknattleikur 7
- Jóhann Berg Guðmundsson, knattspyrna 4
- Sara Rún Hinriksdóttir, körfuknattleikur 2
- Elín Jóna Þorsteinsdóttir, handknattleikur 1
- Kristinn Pálsson, körfuknattleikur 1