Neita tengslum við McGregor

Conor McGregor.
Conor McGregor. AFP/Timothy A. Clary

Írska knattspyrnufélagið Drogheda United hefur áréttað að það tengist írska bardagakappanum Conor McGregor ekki með neinum hætti eftir að hann birti mynd af sér með leikmanni liðsins í kjölfar sigurs Drogheda í írsku bikarkeppninni.

McGregor birti mynd af sér á Instagram með frænda sínum, Warren Davis, sem var ónotaður varamaður í 2:0-sigri Drogheda á Derry í bikarúrslitum í nóvember síðastliðnum.

„Okkur barst ábending um færslu á samfélagsmiðlum í tengslum við írsku bikarkeppnina. Þeir sem eru á myndinni eru náskyldir einum leikmanna okkar, sem eins og allir aðrir leikmenn liðsins höfðu aðgengi að bikarnum ásamt fjölskyldumeðlimum á mismunandi tímapunktum.

Drogheda United tengist einstaklingnum sem birti færsluna á samfélagsmiðlum ekki með neinum hætti og sömuleiðis ekki þeim vörumerkjum sem eru nefnd í færslunni,“ sagði í tilkynningu frá írska félaginu.

McGregor var í nóvember síðastliðnum dæmd­ur sek­ur í einka­máli þar sem hann var sakaður um nauðgun og lík­ams­árás.

Hin 35 ára Nikita Hand sakaði hann um nauðgun og fyr­ir að hafa gengið í skrokk á sér á hót­eli í suður­hluta Dublin í des­em­ber árið 2018.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert