Frjálsíþróttakonan Erna Sóley Gunnarsdóttir er íþróttakona Mosfellsbæjar og júdókappinn Skarphéðinn Hjaltason er íþróttakarl bæjarins árið 2024.
Voru þau heiðruð við hátíðlega athöfn í Hlégarði fimmtudaginn 9. janúar.
Við sama tilefni var karlalið Aftureldingar í knattspyrnu valið afrekslið Mosfellsbæjar, Magnús Már Einarsson þjálfari liðsins valinn þjálfari ársins og móðir hans Hanna Símonardóttir valin sjálfboðaliði ársins.
Í umsögnum Mosfellsbæjar um sigurvegarana segir:
Íþróttakona Mosfellsbæjar 2024 - Erna Sóley Gunnarsdóttir kúluvarpari:
Árið 2024 varð Erna Sóley fyrsta íslenska konan til að keppa í kúluvarpi á Ólympíuleikum, þegar hún tók þátt í leikunum í París. Þar kastaði hún lengst 17,39 metra og endaði í 20. sæti af 31 keppanda. Aðeins fjórir aðrir Íslendingar unnu sér rétt til þátttöku á Ólympíuleikunum í ár. Áður hafði hún keppt á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhúss í Glasgow í mars 2024, þar sem hún varð í 14. sæti.
Erna Sóley setti Íslandsmet í kúluvarpi kvenna sumarið 2024 þegar hún kastaði 17,91 metra á Meistaramóti Íslands og bætti þar með eigið Íslandsmet sem hún setti árið 2021. Erna á einnig Íslandsmetið í kúluvarpi innanhúss. Það setti hún þegar hún kastaði kúlunni 17,92 metra í febrúar 2023.
Erna var í desember valin frjálsíþróttakona ársins 2024 af Frjálsíþróttasambandi Íslands.
Erna hefur lýst yfir metnaði sínum til að vera meðal þeirra bestu í heiminum og stefnir á að keppa á Ólympíuleikunum í Los Angeles árið 2028.
Íþróttakarl Mosfellsbæjar 2024 - Skarphéðinn Hjaltason júdómaður:
Skarphéðinn hóf að æfa júdó hjá Júdófélagi Reykjavíkur ellefu ára gamall og er nú, níu árum síðar, orðinn einn besti og öflugasti júdómaður landsins. Hann náði mjög góðum árangri á árinu, varð Íslandsmeistari bæði í -90 kg flokki karla og opnum flokki karla.
Skarphéðinn fékk silfurverðlaun á Norðurlandameistaramótinu í Svíþjóð, bæði í karlaflokki og í U-21 árs flokki karla, og á alþjóðlegu móti í Danmörku, Copenhagen Open, vann hann einnig til silfurverðlauna.
Skarphéðinn var valinn júdómaður ársins 2024 af Júdófélagi Reykjavíkur. Hann er þekktur fyrir mikla vinnusemi og metnað, sem hefur skilað sér í stöðugum framförum og árangri á bæði innlendum og alþjóðlegum vettvangi.
Þjálfari ársins 2024 - Magnús Már Einarsson, þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá Aftureldingu:
Magnús tók við sem aðalþjálfari liðsins í nóvember 2019, eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari tvö ár þar á undan.
Undir hans stjórn hefur Afturelding bætt sig ár frá ári og náði hann í september síðastliðnum sögulegum árangri þegar liðið tryggði sér í fyrsta sinn í sögu félagsins sæti í efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu karla, eftir sigur gegn Keflavík í úrslitaleik umspilsins. Það þótti mjög viðeigandi að ná þeim árangri á 50 ára afmæli knattspyrnudeildarinnar að komast í Bestu deild karla í fyrsta sinn. Magnús Már er þekktur fyrir metnað og elju, bæði innan vallar og utan, sem hefur skilað sér í framförum hjá Aftureldingu á undanförnum árum.
Afrekslið Mosfellsbæjar 2023 - Meistaraflokkur karla í knattspyrnu hjá Aftureldingu:
Meistaraflokkur karla í knattspyrnu hjá Aftureldingu er lið ársins í Mosfellsbæ árið 2024 en liðið braut blað í sögu félagsins með því að tryggja sér sæti í efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu karla í fyrsta skipti í sögu þess.
Afturelding sigraði Keflavík í úrslitaleik umspilsins í september 2024 og tryggði sér þar með sæti í Bestu deildinni fyrir árið 2025. Liðinu var fyrir mót spáð mikilli velgengni, en úrslitin féllu ekki með liðinu til að byrja með og þegar mótið var hálfnað var Afturelding í neðri hluta deildarinnar.
Liðið og teymið í kringum það missti aldrei trúna og tryggði sér með dugnaði, krafti og góðri spilamennsku sæti í umspili Lengjudeildarinnar. Þar lagði Afturelding fyrst nágrannana í Fjölni áður en liðið vann Keflavík í úrslitaleiknum á Laugardalsvelli.
Árangur liðsins hefur haft jákvæð áhrif á íþróttalíf Mosfellsbæjar og hefur hvatt bæði ungt fólk og aðra íbúa bæjarins til að taka þátt í íþróttum og styðja við knattspyrnuliðið. Þessi árangur var ekki aðeins sögulegur heldur einnig merki um vaxandi getu og metnað hjá Aftureldingu sem íþróttafélagi.
Sjálfboðaliði ársins 2023 - Hanna Símonardóttir:
Hanna Símonardóttir, betur þekkt sem Hanna Sím, er mjög mikilvægur hlekkur í því frábæra starfi sem unnið er innan knattspyrnudeildar Aftureldingar. Deildin og félagið allt á henni mikið að þakka og er hún vel kunnug fótboltaáhugafólki á Íslandi fyrir sitt óeigingjarna starf fyrir Ungmennafélagið.
Hanna hefur verið ötull sjálfboðaliði innan Ungmennafélagsins Aftureldingar í næstum þrjá áratugi. Það má segja að hún hafi strax byrjað að láta að sér kveða innan félagsins með dugnaði og hjálpsemi þegar drengirnir hennar hófu að æfa fótbolta hjá félaginu fyrir nær 30 árum, fyrst sem foreldri og seinna meir sem félagsmaður og stjórnarmaður hjá félaginu. Hún var til að mynda meðal forsprakka í að setja Þorrablót Aftureldingar af stað í þeirri mynd sem það er í í dag.
Hanna hefur af mikilli þrautseigju stjórnað Liverpool-skólanum sem haldinn er á sumrin þar sem fleiri en 400 krakkar af landinu öllu koma og æfa undir handleiðslu þjálfara frá Liverpool. Hanna hefur haldið utan um skólann frá upphafi og þeyst um borg og bæ til þess að sækja aðbúnað fyrir skólann og þjálfarana sjálfa. Í fjölda ára hýsti hún þjálfarana undir eigin þaki.
Hanna á stóran þátt í sögulegum árangri meistaraflokks karla í sumar með frumkvæði sínu og eljusemi.