Náði sínum besta árangri á ferlinum

Jón Erik Sigurðsson hafnaði í öðru sæti ásamt Norðmanninum Aleksander …
Jón Erik Sigurðsson hafnaði í öðru sæti ásamt Norðmanninum Aleksander Berg Thorpe. Ljósmynd/Skíðasamband Íslands

Jón Erik Sigurðsson, landsliðsmaður í alpagreinum, náði sínum besta árangri á ferlinum á alþjóðlegu stórsvigsmóti í Pozza di Fassa á Íalíu á gær.

Jón Erik hafnaði í 2. sæti, ásamt Norðmanninum Aleksander Berg Thorpe, og skilaði annað sætið honum bestu FIS-punktum ferilsins í stórsvigi, 43,16.

Bjarni Þór Hauksson var einnig á meðal keppenda á Ítalíu og hafnaði í 10. sæti eftir að hafa verið með fjórða besta tímann eftir fyrri ferðina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert